"Let your self shine" er einkunnarorð Sif Jakobs. Sif vinnur með gull, silfur og glitrandi steina í skartgripum sem sameina ítalskan innblástur og norræna fágun.
Efni
Silfur, Gullhúðað
Steinn
Zirkon
Vörunúmer
BG10752-CZ-YG
Gott að vita
01
Af hverju dökkna silfurskartgripir?
Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.
Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.
02
Hvað þýða merkingarnar 925, 585 og 750?
Merkingin 925 stendur fyrir sterlingsilfur sem inniheldur 92,5% hreint silfur.
Merkingin 585 táknar 14 karata gull og 750 táknar 18 karata gull. Merkingarnar segja til um hlutfall hreins góðmálms í vörunni.
03
Hvernig geymi ég skartgripina mína?
Geymdu skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka. Gott er að geyma gripi aðskilda svo þeir rispist ekki eða flækist hver í annan.
Forðastu að geyma skartgripi í miklum raka eða beinu sólarljósi í langan tíma.
04
Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?
Skartgripir endast lengur ef farið er vel með þá. Taktu þá af þér við íþróttaiðkun, sund, sturtu, garðvinnu og önnur störf þar sem þeir geta orðið fyrir höggi, raka eða rispum.
Forðastu einnig að skartgripir komist í beina snertingu við ilmvatn, snyrtivörur, hárvörur og sterk hreinsiefni.
Choosing a selection results in a full page refresh.