Meba

Gullsmiður

GULLSMIÐUR
VERKSTÆÐI OG ÞJÓNUSTA 

 

Gullsmíðaverkstæði:
Meba er með starfrækt gullsmíðaverkstæði og er það staðsett í Meba Kringlunni. Við tökum að okkur flestar viðgerðir skartgripa og tekur það að jafnaði 10-14 virka daga. 
Tekið er á móti viðgerðum í verslunum okkar í Kringlunni og Smáralind. 

 

Sérsmíði
Við tökum að okkur sérsmíði. Gullsmiðirnir okkar eru á staðnum alla virka daga til 16:30 en gott er þó að hringja á undan ef óskað er eftir samtali við gullsmið. 

 

Giftingahringar:
Við erum með úrval af giftingahringum í verslunum okkar en að sjálfsögðu er hægt að vera í samtali við gullsmið sé óskað eftir sérsmíði.  Afhending á giftingahringum er 10 - 14 dagar en bregðumst fljótt við sé þess þörf. 
Allir giftingahringarnir okkar eru smíðaðir á verkstæði Meba. 

 

 

    MÓTTÖKUGJALD Á VIÐGERÐUM ER 2.000 KR


    Móttökugjald gengur upp í viðgerð sé hún samþykkt,
     athugið að móttökugjald er ekki endurgreitt