Uppselt
Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

TÁKN

TÁKN

Töff signet hringur úr línunni Tákn, úr silfri með demant. Táknin sem hann ber eru auga, sverð og eilífð. Þegar táknin voru valin var lögð áhersla á að þau endurspegluðu saman það litróf tilfinninga og atburða sem óhjákvæmilega eiga sér stað á mannsævi. Sverðið getur táknað styrk og hugrekki en einnig sársauka og átök, augað er í sumum menningarheimum tákn verndar og æðri skilnings, og eilífðin minnir okkur á að við erum hluti af hringrás þar sem vináttubönd vara endalaust.

Almennt verð 46,700 kr
Almennt verð 0 kr Útsöluverð 46,700 kr
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
Litur á demant

Uppselt

Þú færð tölvupóst þegar varan kemur aftur.

  • Frí heimsending þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
  • Skiptimiði fylgir öllum pöntunum á ekki við um sérpantanir
  • Sækja í verslun Kringlan eða Smáralind
Skoða allar upplýsingar
TÁKN - OrriFinnhvítur46,700 kr
Hönnuðurinn

OrriFinn

Orrifinn skapar táknræna og listræna skartgripi í Reykjavík. Verkin eru unisex, persónuleg og bera með sér sterka tilfinningu fyrir formi og sögu.

Efni
Silfur
Steinn
Demantur
Tákn
Auga, Sverð, Eilífð

Gott að vita

Af hverju dökkna silfurskartgripir?

Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.

Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.

Er hægt að fá áletrun í trúlofunar- eða giftingarhringa?

Já. Í mörgum tilfellum er hægt að fá áletrun innan í hringinn.

Lengd og útfærsla áletrunar fer eftir breidd, efni og hönnun hringsins. Við förum yfir möguleikana með þér áður en áletrunin er framkvæmd.

Er hægt að sérpanta eða sérsmíða hringa?

Meba býður upp á sérpantanir á völdum hringum og getur farið yfir möguleika á sérsmíði eða breytingum.

Möguleikarnir og afhendingartíminn fara eftir hönnun, efni og framleiðanda. Sendu tölvupóst á meba@meba.is eða komdu í verslun og við förum yfir óskirnar með þér.

Get ég fengið persónulega ráðgjöf?

Já. Við tökum okkur tíma til að fara yfir mismunandi möguleika og hjálpa þér að velja trúlofunar- eða giftingarhringa sem henta þínum óskum, lífsstíl og fjárhagsáætlun.

Ekki er nauðsynlegt að panta tíma en gott getur verið að senda tölvupóst á meba@meba.is áður en þú kemur ef þú vilt fá ítarlega ráðgjöf hjá gullsmið.