Gulagull - Demantur
Gulagull - Demantur
Okkar einstaklega fallegu handsmíðuðu giftingahringar, sérsmíðaðir fyrir hvern og einn. Prófíll 2: Hálf kúptir að utan og kúptir inn í, með einum demanti. Áletrun er innifalin í verði og verð miðast við hringapar. Hægt er að fá þessa gerð í öllum breiddum með flestum stærðum af demöntum.
Hvernig á að mæla hringastærð
Þú finnur réttu stærðina á nokkrum mínútum. Það eina sem þú þarft er reglustika með millimetrum.
Aðferð 1: Mældu hring sem passar
Best ef þú átt nú þegar hring sem passar á réttan fingur.
- Veldu hring sem situr vel á fingrinum.
- Leggðu hann flatan og mældu þvert yfir að innanverðu, frá innri brún að innri brún. Þetta er þvermálið í mm.
- Finndu þvermálið í töflunni hér að neðan til að sjá hringastærðina þína.
Stærðartafla
| Stærð (ummál mm) | Þvermál (mm) |
|---|---|
| 44 | 14,0 |
| 45 | 14,3 |
| 46 | 14,6 |
| 47 | 15,0 |
| 48 | 15,3 |
| 49 | 15,6 |
| 50 | 15,9 |
| 51 | 16,2 |
| 52 | 16,6 |
| 53 | 16,9 |
| 54 | 17,2 |
| 55 | 17,5 |
| 56 | 17,8 |
| 57 | 18,1 |
| 58 | 18,5 |
| 59 | 18,8 |
| 60 | 19,1 |
| 61 | 19,4 |
| 62 | 19,7 |
| 63 | 20,1 |
| 64 | 20,4 |
| 65 | 20,7 |
| 66 | 21,0 |
| 67 | 21,3 |
| 68 | 21,6 |
| 69 | 22,0 |
| 70 | 22,3 |
| 71 | 22,6 |
| 72 | 22,9 |
| 73 | 23,2 |
| 74 | 23,6 |
| 75 | 23,9 |
| 76 | 24,2 |
Aðferð 2: Notaðu band
Ef þú átt engan hring til að mæla.
- Klipptu mjóa pappírsræmu eða taktu band eða spotta.
- Vefðu því þétt utan um fingurinn, neðst þar sem hringurinn mun sitja. Það á að sitja vel en ekki herða að.
- Merktu þar sem endarnir mætast, leggðu bandið flatt og mældu að merkinu. Þessi lengd er ummálið í mm, og það er hringastærðin þín.
Góð ráð
- Mældu seint á daginn, þegar fingur eru stærstir.
- Forðastu að mæla þegar hendurnar eru kaldar, þá skreppa fingur saman og stærðin verður of lítil.
- Hringurinn þarf að komast yfir hnúann. Ef hnúinn er mun breiðari en fingurinn sjálfur, mældu þá hvort tveggja og veldu stærð þar á milli.
- Fyrir breiða hringa (um 6 mm eða breiðari) getur verið gott að fara upp um eina stærð, því breiðir hringir sitja þéttar.
- Ef mælingin lendir á milli tveggja stærða skaltu velja þá stærri.
Hringur 1
0 / 24
Hringur 2
0 / 24
Komdu við í Kringlunni eða Smáralind og við mælum fingurinn á staðnum, það tekur tvær mínútur og kostar ekkert.
Veldu nauðsynlega valkosti til að halda áfram
Tókst ekki að sækja upplýsingar um afhendingu
- Frí heimsending- þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
- Skiptimiði fylgir öllum pöntunum- á ekki við um sérpantanir
- Sækja í verslun- Kringlan eða Smáralind

Nánari upplýsingar
- Efni
- Gull
- Karöt gulls
- 14 kt
- Steinn
- Demantur
- Þykkt
- 1,8 mm
Gott að vita
01Er hægt að fá áletrun í trúlofunar- eða giftingarhringa?
Já. Í mörgum tilfellum er hægt að fá áletrun innan í hringinn.
Lengd og útfærsla áletrunar fer eftir breidd, efni og hönnun hringsins. Við förum yfir möguleikana með þér áður en áletrunin er framkvæmd.
02Er hægt að sérpanta eða sérsmíða hringa?
Meba býður upp á sérpantanir á völdum hringum og getur farið yfir möguleika á sérsmíði eða breytingum.
Möguleikarnir og afhendingartíminn fara eftir hönnun, efni og framleiðanda. Sendu tölvupóst á meba@meba.is eða komdu í verslun og við förum yfir óskirnar með þér.
03Get ég fengið persónulega ráðgjöf?
Já. Við tökum okkur tíma til að fara yfir mismunandi möguleika og hjálpa þér að velja trúlofunar- eða giftingarhringa sem henta þínum óskum, lífsstíl og fjárhagsáætlun.
Ekki er nauðsynlegt að panta tíma en gott getur verið að senda tölvupóst á meba@meba.is áður en þú kemur ef þú vilt fá ítarlega ráðgjöf hjá gullsmið.
04Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég vel demant?
Við val á demanti er meðal annars horft til þyngdar, litar, hreinleika og slípunar. Samspil þessara þátta hefur áhrif á útlit og verð demantsins.
Starfsfólk Meba útskýrir muninn og hjálpar þér að finna demant sem hentar þínum óskum og fjárhagsáætlun.