Hálsmen fáanlegt með gullhúð og rhodiumhúð. Hönnunin sækir innblástur í Henna munstur, ævaforn sið í líkamsskrauti sem á rætur að rekja um 5000 ár aftur í tímann og er notaður í ýmsum indverskum athöfnum á borð við giftingar og fæðingar. Henna hefur margar mikilvægar þýðingar, blóm og krónublöð tákna hamingju og gleði en vínviður og laufblöð standa fyrir tryggð og lífskraft. Lola gyðjan er táknmynd fyrir sterka og fallega konu.
Almennt verð
9,900 kr
Almennt verðÚtsöluverð
9,900 kr
Útsala
Uppselt
Skattar innifaldir.
Tókst ekki að sækja upplýsingar um afhendingu
Frí heimsending-þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
Skiptimiði fylgir öllum pöntunum-á ekki við um sérpantanir
EVA vinnur með silfur og klassísk form. Útkoman er mjúk og tímalaus hönnun sem sameinar fágun, einfaldleika og kvenlega nærveru.
Efni
Gullhúðað, Silfur
Gott að vita
01
Af hverju dökkna silfurskartgripir?
Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.
Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.
02
Hvað þýða merkingarnar 925, 585 og 750?
Merkingin 925 stendur fyrir sterlingsilfur sem inniheldur 92,5% hreint silfur.
Merkingin 585 táknar 14 karata gull og 750 táknar 18 karata gull. Merkingarnar segja til um hlutfall hreins góðmálms í vörunni.
03
Hvernig geymi ég skartgripina mína?
Geymdu skartgripi á þurrum stað, helst í öskju eða mjúkum poka. Gott er að geyma gripi aðskilda svo þeir rispist ekki eða flækist hver í annan.
Forðastu að geyma skartgripi í miklum raka eða beinu sólarljósi í langan tíma.
04
Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?
Skartgripir endast lengur ef farið er vel með þá. Taktu þá af þér við íþróttaiðkun, sund, sturtu, garðvinnu og önnur störf þar sem þeir geta orðið fyrir höggi, raka eða rispum.
Forðastu einnig að skartgripir komist í beina snertingu við ilmvatn, snyrtivörur, hárvörur og sterk hreinsiefni.
Val á valkosti leiðir til þess að síðan endurhleðst að fullu.