Uppselt
Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

SHIVA HRINGUR

SHIVA HRINGUR

Hringur fáanlegur með rhodiumhúð, svartri rhodiumhúð og gullhúð. Henna munstur- og líkamsskraut er ævaforn siður sem á sér um 5000 ára sögu og er notað í mörgum indverskum athöfnum á borð við giftingar og fæðingar. Henna hefur margar mikilvægar þýðingar eins og hamingju og gæfu, þar sem blóm og krónublöð standa fyrir hamingju og gleði en vínviður og laufblöð fyrir tryggð og lífskraft. Shiva gyðjan er yfirnáttúruleg vera sem skapar, verndar og umbreytir heiminum, þekkt sem gyðja yoga, hugleiðslu og lista og tákn fyrir gæfu, hreinleika og velfarnað.

Almennt verð 7,900 kr
Almennt verð Útsöluverð 7,900 kr
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
Stærð
  • Frí heimsending þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
  • Skiptimiði fylgir öllum pöntunum á ekki við um sérpantanir
  • Sækja í verslun Kringlan eða Smáralind
Skoða allar upplýsingar
EVA - SHIVA HRINGUR607,900 kr
Hönnuðurinn

EVA

EVA vinnur með silfur og klassísk form. Útkoman er mjúk og tímalaus hönnun sem sameinar fágun, einfaldleika og kvenlega nærveru.

Efni
Ródíumhúðað, Silfur

Gott að vita

Af hverju dökkna silfurskartgripir?

Silfur getur dökknað þegar það kemst í snertingu við loft, raka, snyrtivörur og önnur efni. Þetta er eðlilegt og þýðir ekki að skartgripurinn sé skemmdur.

Oft er hægt að endurheimta gljáann með silfurklút eða viðeigandi hreinsun. Komdu með gripinn í verslun ef þú ert ekki viss um hvaða aðferð hentar.

Er hægt að fá áletrun í trúlofunar- eða giftingarhringa?

Já. Í mörgum tilfellum er hægt að fá áletrun innan í hringinn.

Lengd og útfærsla áletrunar fer eftir breidd, efni og hönnun hringsins. Við förum yfir möguleikana með þér áður en áletrunin er framkvæmd.

Er hægt að sérpanta eða sérsmíða hringa?

Meba býður upp á sérpantanir á völdum hringum og getur farið yfir möguleika á sérsmíði eða breytingum.

Möguleikarnir og afhendingartíminn fara eftir hönnun, efni og framleiðanda. Sendu tölvupóst á meba@meba.is eða komdu í verslun og við förum yfir óskirnar með þér.

Get ég fengið persónulega ráðgjöf?

Já. Við tökum okkur tíma til að fara yfir mismunandi möguleika og hjálpa þér að velja trúlofunar- eða giftingarhringa sem henta þínum óskum, lífsstíl og fjárhagsáætlun.

Ekki er nauðsynlegt að panta tíma en gott getur verið að senda tölvupóst á meba@meba.is áður en þú kemur ef þú vilt fá ítarlega ráðgjöf hjá gullsmið.