Vatnsþol segir til um hversu vel úrið þolir raka og vatn. Merking á borð við 30, 50 eða 100 metra þýðir þó ekki að alltaf sé óhætt að nota úrið á því dýpi.
Fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðanda um notkun í vatni. Vatnsþol getur einnig minnkað með tímanum þegar þéttingar eldast eða úrið verður fyrir höggi.
02
Hver er munurinn á quartz-úri og upptrekktu/sjálftrekkjandi úri?
Quartz-úr gengur fyrir rafhlöðu og er yfirleitt mjög nákvæmt og viðhaldslítið.
Sjálftrekkt úr er knúið áfram af hreyfingu úlnliðsins og þarf því ekki rafhlöðu. Ef úrið er ekki notað í einhvern tíma getur orkuforðinn tæmst og úrið stöðvast. Þá þarf yfirleitt að trekkja það og stilla að nýju.
Upptrekkt úr er úr sem þarf að trekkja daglega til tveggja daga fresti og þarf því ekki rafhlöðu.
03
Hver er munurinn á safírgleri og hertu gleri?
Safírgler er mjög rispuþolið og heldur yfirleitt vel útliti sínu við daglega notkun.
Hert gler er sterkt og algengt í úrum en rispast frekar en safírgler. Hvorug gerðin er þó óbrjótanleg og því er mikilvægt að verja úrið fyrir höggum.
04
Hvernig finn ég rétta stærð á úri?
Stærð úrs ræðst meðal annars af þvermáli og þykkt úrkassans og hvernig úrið situr á úlnliðnum.
Sumir kjósa nett og látlaust úr en aðrir stærra úr sem er meira áberandi. Í verslunum Meba geturðu mátað mismunandi stærðir og fengið aðstoð við að finna úr sem passar vel.
Val á valkosti leiðir til þess að síðan endurhleðst að fullu.