Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000kr

Leita

    orrifinn

    orrifinn - Sær lokkar

    Eyrnalokkar úr línunni Sær eftir orrafinn

    • Eyrnalokkar úr silfri
    • Ferskvatnsperlur

    SÆR – Orrifinn Skartgripalína fyrir karla og konur

    Hafið umlykur okkur öll. Sjórinn, undirdjúpin, þetta kraftmikla náttúruafl heillar okkur og hræðir í senn. Við berum óttablandna virðingu fyrir hafinu og krafti þess sem gefur og tekur. Mjúkur og ávalur dropi sem er saklaus í smæð sinni myndar öldu sem með stærð sinni og krafti skapar heilan heim. Galdrar felast í undirdjúpunum þar sem leyndarmálin leynast og furðuverkin verða til. Perla úr skel ratar í keðju um háls, hún er fjársjóður undirdjúpanna, sæborin drottning. Sagan sýnir perluna í stóru hlutverki í verkum meistaranna, Stúlka með perlueyrnalokk greipist í minni okkar með sinni ljóðrænu fegurð.

    Leyfðu göldrum sædrottningarinnar að fanga þig