Tissot Ballade sameinar klassískan glæsileika og svissneska nákvæmni í tímalausri hönnun. Úrið er með 30 mm ryðfríum stálkassa í silfur- og gulltónum, silfurlitaðri skífu og fallega riffluðum hring. Sjálfvirkt Powermatic 48 úrverk með COSC-vottun, sem staðfestir að úrverkið hafi staðist strangar og nákvæmar mælingar hjá svissnesku opinberu tímamælingarstofnuninni, tryggir framúrskarandi nákvæmni og áreiðanleika. Úrið býður upp á allt að 48 klukkustunda gangaforða og er með rispuþolnu safírgleri. Með 100 metra vatnsheldni og glæsilegri stálkeðju er þetta fágað úr sem hentar jafnt hversdagsnotkun sem sérstökum tilefnum.
Almennt verð
217,900 kr
Almennt verð
0 kr
Útsöluverð
217,900 kr
Útsala
Uppselt
Skattar innifaldir.
Tókst ekki að sækja upplýsingar um afhendingu
Frí heimsending-þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira
Skiptimiði fylgir öllum pöntunum-á ekki við um sérpantanir
Vatnsþol segir til um hversu vel úrið þolir raka og vatn. Merking á borð við 30, 50 eða 100 metra þýðir þó ekki að alltaf sé óhætt að nota úrið á því dýpi.
Fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðanda um notkun í vatni. Vatnsþol getur einnig minnkað með tímanum þegar þéttingar eldast eða úrið verður fyrir höggi.
02
Hver er munurinn á quartz-úri og upptrekktu/sjálftrekkjandi úri?
Quartz-úr gengur fyrir rafhlöðu og er yfirleitt mjög nákvæmt og viðhaldslítið.
Sjálftrekkt úr er knúið áfram af hreyfingu úlnliðsins og þarf því ekki rafhlöðu. Ef úrið er ekki notað í einhvern tíma getur orkuforðinn tæmst og úrið stöðvast. Þá þarf yfirleitt að trekkja það og stilla að nýju.
Upptrekkt úr er úr sem þarf að trekkja daglega til tveggja daga fresti og þarf því ekki rafhlöðu.
03
Hver er munurinn á safírgleri og hertu gleri?
Safírgler er mjög rispuþolið og heldur yfirleitt vel útliti sínu við daglega notkun.
Hert gler er sterkt og algengt í úrum en rispast frekar en safírgler. Hvorug gerðin er þó óbrjótanleg og því er mikilvægt að verja úrið fyrir höggum.
04
Hvernig finn ég rétta stærð á úri?
Stærð úrs ræðst meðal annars af þvermáli og þykkt úrkassans og hvernig úrið situr á úlnliðnum.
Sumir kjósa nett og látlaust úr en aðrir stærra úr sem er meira áberandi. Í verslunum Meba geturðu mátað mismunandi stærðir og fengið aðstoð við að finna úr sem passar vel.
Val á valkosti leiðir til þess að síðan endurhleðst að fullu.